• Forsíða
  • Um okkur
  • Matseðill
  • Vínseðill
  • Panta borð
  • Hafa samband
  • Gallerí
  • Fundir og veislur
AALTO BISTRO

AALTO Bistro er nýr, vinalegur og spennandi veitingastaður í Norræna húsinu sem rekinn er undir dyggri stjórn og listfengi Sveins Kjartanssonar matreiðslumeistara og sjónvarpskokks. 

AALTO Bistro markar sérstöðu þar sem farnar eru ótroðnar og spennandi slóðir í matreiðslu og við nýtingu á óhefðbundnu hráefni, sem og daðrað við skandinavíska matargerð undir miðevrópskum áhrifum. 

Á AALTO Bistro er á boðstólum hollur og ljúffengur matur úr fersku gæðahráefni.

Einnig er gott úrval af heimabökuðum kökum og öðru spennandi sætmeti með kaffinu allan daginn. 

Gestum og gangandi gefst því tækifæri á að njóta til hins ítrasta alls þess sem Norræna húsið hefur upp á að bjóða; bókmenntir, myndlist, matargerð og menning í sinni fjölbreyttustu mynd.

Veitingastaðurinn AALTO Bistro dregur nafn sitt af hönnuði Norræna hússins, hinum heimsþekkta finnska arkitekt, Alvar Aalto (1898 – 1976), og vill þannig heiðra minningu hans og arfleifð.



ALVAR AALTO OG NORRÆNA HÚSIÐ

Norræna húsið í Reykjavík var vígt þann 24.ágúst 1968. Húsið er eitt af síðustu verkum á ferli hins merka finnska arkitekts Alvar Aalto.

Alvar Aalto (f. 1898 - d. 1976). Honum var sérstaklega hugleikið samspil bygginga við landslagið og af hugsjónum módernismans við upphaf 20.aldarinnar um einfaldleika og notagildi bygginga, sem hann svo þróaði áfram á afar listrænan og persónulegan hátt með áherslu á náttúruleg efni og lífræn form sem gefa byggingum hans hlýlegt viðmót. Útgangspunktur allrar vinnu hans var að setja eðli og þarfir mannsins í fyrirrúm, og hann var sannfærður um gildi góðrar byggingarlistar til að auðga mannlegt líf og tilveru.

Norræna húsið er sannarlega sniðið að þeim stað, því loftslagi og þeirri menningu sem það er byggt inn í. Í húsinu er hægt að greina náinn samruna hins hvíta módernisma sem Aalto lagði upp með í byrjun ferils síns og hins efniskennda eða ljóðræna módernisma sem einkenndi síðari verk hans.

Bygging Norræna hússins er ekki stór en staðsetning þess ber vitni þeirri næmu tilfinningu sem Aalto hafði fyrir landslagi staðar. Í stað þess að berast mikinn á tyllir hann húsinu á manngerða þúst í miðri mýrinni og formar síðan litla tjörn norðan við húsið sem kallast á við stærri tjarnirnar tvær í átt að miðbænum. Með því móti dregur hann fram náttúruleg sérkenni bæjarstæðisins og gagnkvæm tengsl manns og náttúru, byggingar og staðar. Sjálf byggingin er að grunni til lágreist og hvítmáluð.

Upp úr flötu þaki ferhyrningslaga jarðhæðarinnar rís hins vegar allsérstakt og áberandi form sem klætt er dökkfjólubláum glerjuðum flísum. Inn af anddyrinu er skáli í miðju hússins sem nýtur dagsbirtu um kringlótt ofanljós sem dreift er yfir loftið. Frá skálanum er gengið inn í bókasafn hússins, inn í tónlistar- og ráðstefnusalinn, inn í skrifstofuálmuna og ekki síst inn í veitingastofu hússins sem opnast með miklu útsýni yfir miðbæinn að Esjunni til norðurs.

Alvar Aalto hannaði innanstokksmuni í flest allar byggingar sínar og mörg húsgagna hans, lampa og annarra muna eru framleidd enn í dag.

Í Norræna húsinu eru allar innréttingar, lampar og nær öll húsgögn eftir Aalto, og stóru bronshöldurnar á dyrunum eru eins handtak hans sjálfs: mjúkt og þétt.

Stytt grein Guju Daggar Hauksdóttur, arkitekt FAÍ. Greinina má lesa óstytta á heimasíðu norræna hússins: www.norraenahusid.is



STARFSMENN AALTO BISTRO

Picture
Sveinn Kjartansson

Sveinn er matreiðslumeistari og eigandi veitingahússins BORÐSTOFUNNAR bistró-café, sem var opnað 1. október 2013 á 1. hæð Hannesarholts, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík

Sveinn hefur vakið mikla athygli fyrir skapandi og frumlega matreiðslu sína í vinsælum sjónvarpsþáttaröðum: Fagur fiskur I, sem Sagafilm og Matís framleiddu (Eddu-verðlaunin 2011 sem menningar- eða lífsstílsþáttur ársins), Allt upp á einn disk, sem RÚV framleiddi, Fagur fiskur II, framleiðendur Sagafilm og Matís og Fisk í dag sem Matís framleiddi. Allar þáttaraðirnar voru sýndar á RÚV.

Sveinn hefur komið víða við á starfsferli sínum. Hann útskrifaðist sem matreiðslumaður frá Hótel- og veitingaskóla Íslands árið 1985 og hélt fljótlega utan til Oslóar þar sem hann vann sem matreiðslumaður. Þaðan lá leiðin til Amsterdam þar sem Sveinn starfaði um áraraðir. Hann vann á ýmsum veitingastöðum á ferðalögum sínum um heiminn og hefur starfað á erlendri grundu lungað úr starfsferlinum. Við og við kom hann heim og setti m.a. upp veitingastofuna á Listasafni Íslands, þegar það flutti í núverandi húsnæði. Einnig starfaði Sveinn við veitingahúsið Við tjörnina og frá árinu 2002 starfrækti hann Fylgifiska, sérverslun með sjávarfang, ásamt fleirum, sem var brautryðjandi á Íslandi í sölu á tilbúnum ferskum fiskréttum fyrir almenning til að elda.

Haustið 2013 kom út bókin Fagur fiskur, með uppskriftum Sveins og ljósmyndum Áslaugar Snorradóttur, sem Forlagið gaf út og byggir á báðum þáttaröðunum, Fagur fiskur I og II. Sveinn er auk þess höfundur 60 uppskrifta í Fiskbók Hagkaupa sem kom út árið 2004.


AALTO Bistro
Sturlugata 5
Norræna húsið / Nordic house
101 Reykjavík
S: 551 0200
Opnunartími:
Mánudaga - miðvikudaga 11:00 - 17:00
Fimmtudaga - sunnudaga 11:00 - 21:00