AALTO BISTRO

Um okkur

  • Veislur
    • Smáréttaveislur
    • Fundarþjónusta
    • AALTO Bistro >
      • Gallerí
      • Fundir og veislur
    • Ýmis tilefni
    • Veisluþjónusta
  • Hafa samband / Contact us
  • Matseðill / MENU
    • Vínseðill / Wine menu
    • DÖGURÐUR / BRUNCH
  • Norræna húsið / The Nordic House
AALTO BISTRO
AALTO Bistro er vinalegur og spennandi veitingastaður í Norræna húsinu sem rekinn er undir dyggri stjórn og listfengi Sveins Kjartanssonar matreiðslumeistara og sjónvarpskokks. 
​
AALTO Bistro markar sérstöðu þar sem farnar eru ótroðnar og spennandi slóðir í matreiðslu og við nýtingu á óhefðbundnu hráefni, sem og daðrað við skandinavíska matargerð undir miðevrópskum áhrifum. 

Á AALTO Bistro er á boðstólum hollur og ljúffengur matur úr fersku gæðahráefni. Einnig er gott úrval af heimabökuðum kökum og öðru spennandi sætmeti með kaffinu allan daginn. 

Gestum og gangandi gefst því tækifæri á að njóta til hins ítrasta alls þess sem Norræna húsið hefur upp á að bjóða; bókmenntir, myndlist, matargerð og menning í sinni fjölbreyttustu mynd.

Veitingastaðurinn AALTO Bistro dregur nafn sitt af hönnuði Norræna hússins, hinum heimsþekkta finnska arkitekt, Alvar Aalto (1898 – 1976), og vill þannig heiðra minningu hans og arfleifð.

ALVAR AALTO  OG  NORRÆNA HÚSIÐ
​

Norræna húsið í Reykjavík var vígt þann 24.ágúst 1968. Húsið er eitt af síðustu verkum á ferli hins merka finnska arkitekts Alvar Aalto.

Alvar Aalto (f. 1898 - d. 1976). Honum var sérstaklega hugleikið samspil bygginga við landslagið og af hugsjónum módernismans við upphaf 20.aldarinnar um einfaldleika og notagildi bygginga, sem hann svo þróaði áfram á afar listrænan og persónulegan hátt með áherslu á náttúruleg efni og lífræn form sem gefa byggingum hans hlýlegt viðmót. Útgangspunktur allrar vinnu hans var að setja eðli og þarfir mannsins í fyrirrúm, og hann var sannfærður um gildi góðrar byggingarlistar til að auðga mannlegt líf og tilveru.
​
Norræna húsið er sannarlega sniðið að þeim stað, því loftslagi og þeirri menningu sem það er byggt inn í. Í húsinu er hægt að greina náinn samruna hins hvíta módernisma sem Aalto lagði upp með í byrjun ferils síns og hins efniskennda eða ljóðræna módernisma sem einkenndi síðari verk hans.

Bygging Norræna hússins er ekki stór en staðsetning þess ber vitni þeirri næmu tilfinningu sem Aalto hafði fyrir landslagi staðar. Í stað þess að berast mikinn á tyllir hann húsinu á manngerða þúst í miðri mýrinni og formar síðan litla tjörn norðan við húsið sem kallast á við stærri tjarnirnar tvær í átt að miðbænum. Með því móti dregur hann fram náttúruleg sérkenni bæjarstæðisins og gagnkvæm tengsl manns og náttúru, byggingar og staðar. Sjálf byggingin er að grunni til lágreist og hvítmáluð.

Upp úr flötu þaki ferhyrningslaga jarðhæðarinnar rís hins vegar allsérstakt og áberandi form sem klætt er dökkfjólubláum glerjuðum flísum. Inn af anddyrinu er skáli í miðju hússins sem nýtur dagsbirtu um kringlótt ofanljós sem dreift er yfir loftið. Frá skálanum er gengið inn í bókasafn hússins, inn í tónlistar- og ráðstefnusalinn, inn í skrifstofuálmuna og ekki síst inn í veitingastofu hússins sem opnast með miklu útsýni yfir miðbæinn að Esjunni til norðurs.

Alvar Aalto hannaði innanstokksmuni í flest allar byggingar sínar og mörg húsgagna hans, lampa og annarra muna eru framleidd enn í dag.

Í Norræna húsinu eru allar innréttingar, lampar og nær öll húsgögn eftir Aalto, og stóru bronshöldurnar á dyrunum eru eins handtak hans sjálfs: mjúkt og þétt.

Stytt grein Guju Daggar Hauksdóttur, arkitekt FAÍ. Greinina má lesa óstytta á heimasíðu Norræna hússins

KOKKARNIR Á AALTO BISTRO
Picture
SVEINN KJARTANSSON
er matreiðslumeistari og eigandi veitingahússins AALTO Bistro í Norræna húsinu sem var opnað 10. maí  2014.
​
​Sveinn hefur vakið mikla athygli fyrir skapandi og frumlega matreiðslu sína í vinsælum sjónvarpsþáttaröðum: Fagur fiskur I, sem Sagafilm og Matís framleiddu (Eddu-verðlaunin 2011 sem menningar- eða lífsstílsþáttur ársins), Allt upp á einn disk, sem RÚV framleiddi, Fagur fiskur II, Nautnir norðursins, framleiðendur Sagafilm og Matís, og Fisk í dag sem Matís framleiddi. Allar þáttaraðirnar voru sýndar á RÚV.
 
​Sveinn hefur komið víða við á starfsferli sínum. Hann útskrifaðist sem matreiðslumaður frá Hótel- og veitingaskóla Íslands árið 1985 og hélt fljótlega utan til Oslóar þar sem hann vann sem matreiðslumaður. Þaðan lá leiðin til Amsterdam þar sem Sveinn starfaði um áraraðir. Hann vann á ýmsum veitingastöðum á ferðalögum sínum um heiminn og hefur starfað á erlendri grundu lungað úr starfsferlinum.

​Við og við kom hann heim og setti m.a. upp ​veitingastofuna á Listasafni Íslands, þegar það flutti í núverandi húsnæði. Einnig starfaði Sveinn við veitingahúsið Við tjörnina og frá árinu 2002 starfrækti hann Fylgifiska, sérverslun með sjávarfang, ásamt fleirum, sem var brautryðjandi á Íslandi í sölu á tilbúnum ferskum fiskréttum fyrir almenning til að elda.

Haustið 2013 kom út bókin Fagur fiskur, með uppskriftum Sveins og ljósmyndum Áslaugar Snorradóttur, sem Forlagið gaf út og byggir á báðum þáttaröðunum, Fagur fiskur I og II. Sveinn er auk þess höfundur 60 uppskrifta í FiskIbók Hagkaupa sem kom út árið 2004.

HELGI PÉTUR HANNESSON 
er einn af okkar frábæru kokkum á AALTO Bistro.
Helgi Pétur er ástríðukokkur og náttúrutalent í eldhúsinu. Honum er margt til lista lagt. Hann lærði grafíska hönnun í Listaháskóla Íslands og hefur verið trommuleikari með fjölmörgum hljómsveitum af ýmsu tagi, t.d. með ljúflngsbandinu Dáðadrengjum og pönkhljómsveitinni Morðingjar. Hann lætur þó listræna hæfileika sína að lang mestu leyti blómstra í eldhúsinu! Fyrir það erum við þakklát.


WOJCIECH WOJCIECHOWSKI 
er afar flinkur ástríðukokkur frá Póllandi og hefur búið og starfað á Íslandi í þrjú ár á ýmsum veitingahúsum við góðan orðstýr.  

AMAZING RESTAURANT IN GREAT LOCATION
"I visited this restaurant with my colleagues who live in Reykjavík. The building was designed by a Finnish architect who is very famous for his contemporary designs. The bistro is located inside, we were welcomed by the owner who has built up a great business and reputation for amazing food. We all choose the lunch time special menu which consisted of 3 courses, we had the cauliflower soup which was the best soup I have ever eaten! The main course was fish of the day and it was amazing, see photo. On top of that you have great views over the wildlife sanctuary. I would definitely recommend this restaurant if you want a great experience and amazing food."

​TRIPADVISOR July 17. 2019


A REALLI ENJOYABLE LUNCH

"AALTO Bistro is tucked into a corner of the Nordic House, next to Háskóli Íslands. The ambience is relaxed upscale Sandinavian, and the view of the university and Reykjavík from the floor-to-ceiling windows is beautiful.
They have a rotating menu every day, I got the fish of the day (plaice in a white wine dijon sauce) and it was the second best fish meals I've had in my 2 years living in Iceland (second only to Messinn). My wife got the fish soup and it was excellent also. For Reykjavík the price was very reasonable, you can get much cheaper food on Laugavegur for basically the same price (I paid maybe 300 ISK more for my fish than the cost of a burger and fries on the high street).
A great find, and I would highly recommend it!"

​
TRIPADVISOR May 9. 2019

  • Veislur
    • Smáréttaveislur
    • Fundarþjónusta
    • AALTO Bistro >
      • Gallerí
      • Fundir og veislur
    • Ýmis tilefni
    • Veisluþjónusta
  • Hafa samband / Contact us
  • Matseðill / MENU
    • Vínseðill / Wine menu
    • DÖGURÐUR / BRUNCH
  • Norræna húsið / The Nordic House